Skilmálar
Vefverslun Al-Anon er opin allan sólarhringinn. Þegar þú verslar í vefversluninni rennur allur ágóði af sölunni óskiptur til Al-Anon samtakanna. Kærar þakkir fyrir stuðninginn.
Verð á vörum
- Verð sem birtist í netversluninni er með 11% virðisaukaskatti. Verð er birt með fyrirvara um myndabrengl og/eða prentvillur og áskilur Al-Anon sér rétt til að ljúka ekki viðskiptunum hafi rangt verð verið gefið upp.
- Við upplýsum viðskiptavini okkar um það ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager tímabundið og bjóðum upp á að hún verði send þegar hún verður aftur fáanleg.
- Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma mun Al-Anon endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla farið fram.
Sendingarmöguleikar
Hægt er að nálgast vöruna í afgreiðslu að Sundaborg 5, 2. hæð, opið þriðjudaga kl. 16:00-18:00 og miðvikudaga kl. 15:00-18:00, eða fá hana senda gegn greiðslu sendingarkostnaðar. Íslandspóstur sér um að senda pakkana.**
- Sækja pakka í Sundaborg 5
- Vara kemst í umslag, kostnaður 490 krónur
- Pakki á pósthús, kostnaður 1.290 krónur
- Pakki heimsending, kostnaður 1.690 krónur
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.
Afhendingartími
Afhendingartími er að jafnaði 1-2 vikur eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað.
Skilafrestur og endurgreiðsla
- Viðskiptavinur getur skilað vöru ef vara er óskemmd og óopnuð í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgir með eða með merki félagsins.
- Almennur skilafrestur á vörum er 30 dagar.
- Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda.
Ef vara reynist gölluð greiðir Al-Anon fyrir endursendingu vörunnar.
Öryggi
Það er öruggt að versla í vefverslun Al-Anon. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu.
Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhentar til þriðja aðila.
Greiðslumöguleikar
Í vefverslun Al-Anon er boðið upp á að greiða með greiðslukorti. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send við fyrsta tækifæri.
Greiðslukort
Mögulegt er að greiða pöntun með öllum helstu kreditkortum og fer greiðsla í gegnum örugga greiðslugátt.
Miðlun upplýsinga
Al-Anon áskilur sér rétt til að hafa samband við viðskiptavini í þeim tilgangi að miðla til þeirra upplýsingum um starfsemi félagsins s.s. fréttum, fræðslu og/eða kynna fyrir þeim fleiri leiðir til að styrkja starfsemina.
Varnarþing
Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Skilmálar þessir gilda frá 13. september 2022.
Fyrirtækjaupplýsingar
Al-Anon
Sundaborg 5
104 Reykjavík
Sími: 551 9282
Netfang: al-anon@al-anon.is.
Staðsetning vefverslunar
Al-Anon, afgreiðsla, 2. hæð
Sundaborg 5
104 Reykjavík
Sími: 551 9282
Ef þú hefur athugasemdir við þessa skilmála hafðu þá samband á al-anon@al-anon.is.